Fréttir
21
09
2016

Les Mills ráðstefna í Stokkhólmi

Borghildur er ný komin heim af BodyPump og Les Mills ráðstefnu í Stokkhólmi ásamt tveimur viðskiptavinum í Hress sem skemmtu sér konunglega ásamt því að fræðast um þessa mögnuðu tíma.
Borghildur kennir BodyPump á eftirfarandi dögum:
Þri. og fim. kl. 18:30 og laugardaga kl. 10:30.

Hvað er Body Pump?
Body Pump er frábært lyftingaprógram frá Les Mills. Kerfið byggir upp styrk, hefur mótandi áhrif á líkaman og er góð brennsla. Allir vöðvahópar líkamans eru þjálfaðir.
Tímarnir eru eins krefjandi og hver og einn vill.
Fer eftir þyngdum sem notaðar eru í hverri æfingu.
Notaðar eru stangir, lóðaplötur og pallur til að liggja á.
Góð tónlist og hvetjandi kennari. Blanda sem getur ekki klikkað.