Fréttir
04
10
2016

Activio mælarnir komnir í hús!

Vinsælu Activio mælarnir eru loksins komnir í hús.mælir
Takmarkað magn svo fyrstir koma fyrstir fá.

Activio er afar áhrifarík, hvetjandi og skemmtileg hópþjálfun byggð á hjartsláttarmælingum. Hentar öllum, byrjendum jafnt sem topp íþróttafólki. Þjálfunarupplifun sem er engu lík. Activio er ný tækni sem sýnir púls þátttakenda á stóru tjaldi. Skífa sem er tengd þínum púlsmæli gefur nákvæmar upplýsingar um hvað þú leggur mikið á þig í tímanum. Aðeins þú veist hvaða skífa er tengd þínum púlsmæli. Activio gerir þátttakendum kleift að æfa á því álagi sem hentar þeim best til að ná hámarks árangri. Markviss þjálfun með stöðugar upplýsingar um ákefð og uppbygging æfingakerfisins gera fólki kleift að auka hitaeiningabrennslu og þjálfa á áhrifaríkan hátt. Sú nýjung er í kerfinu að þú getur stofnað þinn reikning inn á myactivio.com en þá geturðu skráð þig inn á þínum eigin reikning fyrir hvern tíma og færð tölvupóst að tíma loknum með upplýsingum um frammistöðu þína í tímanum, hitaeiningabrennslu, meðalpúls o.fl.
Meira um Activio Hér.