Fréttir
19
10
2017

ROCK HOT YOGA

Eftir: 0

Næstkomandi miðvikudag 25. okt. Verður Gestur með 75 minútna Rock Hot Yoga tíma.
Tíminn hefst kl. 18:30 og skráning er hafin á tímatöflu Hress!
Ókeypis fyrir korthafa en kostar litla 1500 kr fyrir þá sem eru ekki korthafar HRESS.

Þetta verður funheitt stríðsmanns jóga og dúndrandi rokktónlist. Karlmenn eru sérstaklega velkomnir og hvattir til að fara úr að ofan. Tímann er krefjandi en þó aðgengilegur öllum, byrjendum jafnt sem lengra komnum. Hitinn og rakinn sem var til staðar þegar Bikram Choudhury lærði af Bishnu Ghosh í tjaldi á Indlandi er endurskapaður.

Gestur Guðna er ásamt því að vera menntaður Barkan Hot Yoga kennari, gítarkennari og lagahöfundur sem hefur gefið út tvær breiðskífur ásamt því að leika inn á fjölda annara.

Yogaáhugafólk og rokkunnendur, ekki láta þetta dúndurcombó framhjá þér fara!

yoga3