Fréttir
11
01
2018

Unglinganámskeið

Unglinganámskeið stelpur og strákar skráning er kominn á fullt

Næsta námskeið hefst 15.janúar og lýkur 9. apríl

Mánudaga, miðvikudaga og fimmtudaga stelpur
Kl. 15.45 – 16.35

Þriðjudaga, fimmtudaga og föstudaga strákar
Kl. 16:30 – 17:20

Verð: kr. 32.990

Þjálfari: Gunnella og Gunnar

Frábærir 50. mín tímar fyrir stelpur og stráka á aldrinum 12-15 ára.

NÁNARI LÝSING:
Námskeiðin okkar eru fyrir stelpur og stráka sem hafa gaman af því að ögra sjálfum sér.
Æfingarnar eru settar upp á þann hátt að allir geta tekið þátt, óháð því í hvaða formi þeir eru.
Við þjálfum kroppinn á fjölbreyttan máta til að komast í gott form.
Við hjálpum og hvetjum þátttakendur til að gera meira en þeir vissu að þeir gætu.
Við náum árangri saman sem hægt er að vera stoltur af.

Tímarnir enda oft á góðum teygjum og spjalli þar sem krakkarnir fá upplýsingar um ýmislegt sem tengist heilbrigðum lífsstíl.

Kynntar eru flestar þjálfunarleiðir HRESS þar á meðal: tabata, stöðvaþjálfun, krossfit, þjálfun í tækjasal og margt fleira.

Skráning og greiðsla:

Námskeiðin eru niðurgreidd af Hafnarfjarðarbæ, Garðarbæ og Reykjavík.
Þú getur skráð þig sjálf/ur á námskeið hjá okkur með því að hringja í síma 565-2212 eða senda tölvupóst á mottaka@hress.is
Mundu að tilgreina námskeið, tíma, kennitölu og símanúmer.

Skráning á vef Hafnarfjarðar:
1. www.hafnarfjordur.is
2. Mínar síður
3. Skráðu þig inn með Íslykli
4. Niðurgreiðslur
5. Smelltu á Hafnarfjarðarbær (https://hafnarfjordur.felog.is)
6. Hægt að greiða á staðnum og fá endurgreiðslu hjá Hafnarfjarðarbæ, Garðarbæ og Reykjavík