Fréttir
18
08
2024

STRÁKAR 12-15 ÁRA NÁMSKEIÐ

NÝTT NÁMSKEIÐ HEFST 10.SEPTEMBER

Frábært námskeið fyrir stráka á aldrinum 12-15 ára þar sem þú kynnist öllu því helsta sem boðið er upp á í heilsurækt í dag.

Námskeiðið hefst 10. september – 17.desember og kennt er þriðjudaga, fimmtudaga og föstudaga kl. 16:15-17:00.

Þjálfari námskeiðsins er Gunnar Karl Gunnarson, en hann er menntaður IAK einka- og styrktarþjálfari. Gunnar hefur kennt námskeiðið undan farin ár, er með mikla reynslu og einn af okkar vinsælustu þjálfurum.

Á námskeiðinu er lyft lóðum þannig að allir nái bættum árangri. Lærum rétta tækni til að koma í veg fyrir álagsmeiðsl ásamt því að bæta líkamsstöðu. Einstök alhliða þjálfun þar sem lögð er áhersla á vel samsetta styrktar- og þolþjálfun.

Hentar bæði byrjendum og þeim sem vilja bæta líkamsástand sitt til muna í leik og starfi.

Innifalið
• Þrír fjölbreyttir tímar þrisvar á viku
• Einstaklingsmiðuð þjálfun
• Fræðsla sem veitir góða þekkingu á almennri heilsurækt.
• Óvæntur glaðningur

Möguleiki á að fá námskeiðið metið sem valgrein í grunnskólum.

Skráning hér: https://www.abler.io/shop/hress/namskeid

Minnum á námskeiðs- og tómstundastyrki verkalýðsfélaga og fyrirtækja sem endurgreiða námskeiðskostnað.