Fréttir
30
11
2017

Einstaklega falleg kveðja frá Steinvöru

Eftir: Sirrý 0

Heil og sæl,
Við vorum að fá þessa sem við styrktum á Hressleikunum. Einnig getum við sagt frá því að við náðum þeim ótrúlega árangri að safna 3.425.000.-

Þegar Linda, kona sem ég hafði aldrei hitt og þekkti ekki neitt, hringdi í mig og sagði mér frá Hressleikunum sem árlega styrkja eina hafnfirska fjölskyldu og að núna vildu þau styrkja mig og dæturnar, var ég virkilega slegin út af laginu. Kristjón, maðurinn minn sem lést úr krabbameini sumarið 2016, hafði ekki skrifað mikið um sín veikindi á samfélagsmiðla og ég ekki heldur eftir að ég fékk greiningu sumarið 2017. Fáir vissu af mínum veikindum og ég var ennþá að átta mig á því höggi. Ég vissi að okkar saga færi í fjölmiðla og á samfélagsmiðla og við fengjum mikla athygli á nokkrum vikum, og það var ekki auðveld tilhugsun. En ég ákvað að láta slag standa. Linda náði að sannfæra mig og peppa mig upp en hún er líka alveg einstök manneskja. Elsku Linda, þú ert það. Ég vissi að þessi styrkur myndi þýða mjög mikið fyrir mig og dæturnar. Ég sé svo sannarlega ekki eftir að hafa tekið þátt, því ég hef verið umvafin ást og kærleika síðan Hress tilkynnti um styrktarfjölskylduna fyrir leikana 2017.

Það var stórkostlegt að koma í Hress þegar leikarnir voru í gangi og sjá allt fólkið að púla og það á laugardagsmorgni til að styðja við bakið á okkur! Ég var svo glöð og hrærð og allt þar á milli, þetta var alveg ótrúleg upplifun. Þarna voru vinnufélagar, ættingjar, vinir og síðast en ekki síst allt fólkið sem að þekkti okkur ekkert en vill styðja ókunnungt fólk úr firðinum sínum. Þetta verður stund sem við mæðgurnar munum aldrei gleyma. Hress er greinilega alveg sérstök líkamsræktarstöð sem að lætur sig bæinn sinn og fólkið í honum varða. Hafnarfjörður er svo sannarlega heppinn að hafa þetta fyrirtæki í bænum. Við erum tíunda fjölskyldan sem fær veglegan styrk í veikindum í gegnum þeirra framtak.

Við mæðgurnar viljum þakka öllum sem að tóku þátt, Lindu og Nonna í Hress, þeim sem bentu á okkur (og ég veit ekki ennþá hver það var!), starfsfólki Hress fyrir að gefa vinnuna sína fyrir verkefnið, Heklu sem að sá um að safna gjöfum og vinningum, ættingjum okkar Kristjóns, vinum, skólafélögum, vinnufélögum, kennurum stelpnanna, Ljósinu og öllum þeim ókunnugu sem tóku þátt í leikunum, lögðu inn á styrktarreikninginn eða keyptu happdrættismiða. Einnig öllum fyrirtækjunum sem að gáfu okkur rausnarlegar gjafir og gáfu happdrættismiða. Við mæðgurnar opnuðum gjafirnar hérna heima og þetta var eins og á jólunum! Við erum enn að skoða vinningana og njóta þeirra og munum gera næstu mánuði 🙂

Svo er gaman að geta sagt frá því að fyrir stuttu fór ég í fyrstu myndatökuna eftir að hafa tekið krabbameinslyfin í þrjá mánuði. Og vitið þið hvað! Krabbameinið hafði minnkað aðeins og sumt staðið í stað! Allavega virðast lyfin vera að virka og það er alveg stórkostlegt. Ég er viss um að svona mikill kærleikur eins og ég hef fundið fyrir í gegnum allt Hress dæmið hefur hjálpað til!

Styrkurinn gerir mér kleift að vera lengur heima en ég ætlaði. Stefnan er að vera dugleg að byggja mig upp og hugsa vel um dæturnar. Nú er ég þrisvar í viku á Reykjalundi og seinasti dagurinn þar er 8. desember og svo ætla ég að auðvitað mæta í Hress en ég var svo heppin að fá árskort frá þeim! Ég hlakka svo til að geta sinnt okkur mæðgunum almennilega og það er allt ykkur að þakka sem að tóku þátt.

Ég á ekki nógu stór orð til að þakka fyrir okkur, elsku þið öll yndislega fólk. Ég verð alltaf hamingjusöm, þakklát og hrærð yfir þessu. TAKK KÆRLEGA FYRIR OKKUR ÖLL SEM EITT.
Bestu kveðjur og munið að lífið er núna!
Steinvör, Kristín Jóna og Þórhildur.

24068022_831356400368642_3749854163195894432_n