Fréttir
06
09
2023

Hraustir karlar

Komdu þér í þitt allra besta form á nýju 5 vikna námskeið sem hefst 11. september! 

Námskeiðið er kennt tvisvar í viku mánudaga og miðvikudaga kl. 18:30.

Einstök alhliða þjálfun fyrir karla á öllu aldri. Lögð er áhersla á vel samsetta styrktar- og þolþjálfun í skemmtilegum hópi.

Lyftu lóðum þannig að þú náir sem bestum árangri á sem skemmstum tíma. Lærðu rétta tækni til að koma í veg fyrir álagsmeiðsl ásamt því að bæta líkamsstöðu. Það er ekkert sem bætir grunnbrennslu líkamans betur en lyftingar.

Hentar bæði byrjendum og þeim sem vilja bæta líkamsástand sitt til muna í leik og starfi.

Innifalið
• Þjálfun tvisvar í viku
• Ótakmarkaður aðgangur að tækjasal og opnum tímum
• Fræðsla sem veitir góða þekkingu á almennri heilsurækt.
• Óvæntur glaðningur

Þjálfarar námskeiðsins eru þeir Gunnar Karl og Gunnar Pétur. Gunnar Karl Gunnarson er menntaður IAK einka- og styrktarþjálfari. Gunnar Pétur Harðarson er einnig menntaður er menntaður IAK einka- og styrktarþjálfari ásamt því að vera með þjálfaragráðu frá ÍSÍ.

Skráning hér https://www.sportabler.com/shop/hress/namskeid

Minnum á námskeiðs- og tómstundastyrki verkalýðsfélaga og fyrirtækja sem endurgreiða námskeiðskostnað