Fréttir
14
10
2017

HRESSLEIKARNIR 2017

Eftir: 0

Það er með stolti sem við kynnum styrktarmálefni
Hressleikanna 2017.
Það er einstök fjölskylda úr Áslandinu sem við styrkjum í ár. Steinvör V. Þorleifsdóttir og Kristjón Jónsson voru mikið útivistarfólk í gegnum tíðina, stunduðu fjallamennsku og ferðuðust um landið enda miklir náttúruunnendur. Þau kynntust í Hjálparsveit Skáta í Reykjavík þar sem Kristjón var undanfari og vann m.a. það afrek að ganga á Mont Blanc.
Dætur þeirra hjóna eru Þórhildur 10 ára og Kristín Jóna 12 ára.
Kristjón Jónsson rafeindavirki greindist með botnlangakrabbamein árið 2009 sem náðist að lækna með aðgerð og fyrirbyggjandi lyfjameðferðum. En því miður greindist hann aftur 2014 og fór í kjölfarið í mjög erfiðar lyfjameðferðir og í aðgerð í Svíþjóð. Því miður dugði það ekki til og Kristjón lést í júní 2016 eftir harða baráttu enda var uppgjöf ekki til í hans orðabók.
Árið 2006 hafði Steinvör greinst með skjaldkirtilskrabbamein sem hún náði að sigrast á.
Fyrir tilviljun fundust meinvörp í lungum Steinvarar í april sl. Eftir miklar rannsóknir kom í ljós að hún er með sarkmein sem kallast Pecoma. Þetta er fyrsta tilfellið af þessu krabbameini á Íslandi enda afar sjaldgæft krabbamein og talið að 1 á móti milljón fái þetta mein.
Krabbameinið er á fjórða stigi og er í kvið og báðum lungum. Það er hægt að halda þessu krabbameini niðri með sterkum krabbameinslyfjum. Í kjölfarið þarf Steinvör að vera frá vinnu næstu mánuðina og hugsa vel um sig svo mögulega verði hægt að fjarlægja æxlið í kviðarholi.
Sem betur fer náði þessi einstaka fjölskylda að nýta tímann vel saman og búa að góðum minningum. Við í Hress ætlum að styðja mæðgurnar á Hressleikunum í ár eftir öll áföllin sem dunið hafa yfir þessa fjölskyldu.

Hressleikarnir verða haldnir 4. nóv. skráning á leikanna hefst 20. okt.
Sala á Happdrættislínum hefst einnig 20.okt. 


Söfnunarreikningur HRESSLEIKANNA:

0135-05-71304 á kenni­tölu 540497-2149.