Fréttir
17
08
2022

Námskeið fyrir mæður og barnshafandi

Hressar mömmur 

Lokað 4 vikna námskeið ætlað barnshafandi konum konum og konum í fæðingarorlofi þar sem börnin eru velkomin með í tíma. Lögð er áhersla æfa undir leiðsögn þjálfara sem er örugg og kemur konum á heilsusamlegan máta aftur í form á því stigi sem hentar hverri og einni. Styrktar- og þolæfingar með réttri líkamsbeitingu og sérstök áhersla er á að styrkja grindarbotnsvöðva, djúpvöðva kvið- og bakvöðva í æfingaferlinu. Góð aðstaða er fyrir börnin að sofa beint fyrir utan æfingasalinn og hægt er að ganga út um hurð á æfingasalnum til að sækja eða sinna börnunum. Á staðnum eru barnastólar, teppi, leikgrindur og fleira fyrir þær sem vilja nýta sér slíkt.
.
.
Námskeiðið hefst 13. september og er kennt tvisvar í viku, þriðjudaga og fimmtudaga kl. 11:30.
Þjálfari: Valdís Hrönn.
Skráning og greiðsla fer fram hér.