Fréttir
09
11
2023

NÝ 4 vikna yoga námskeið hefjast 13.11.23

Skráning og nánari upplýsingar: https://www.sportabler.com/shop/hress/namskeid

 

Lokað 4 vikna YIN YOGA námskeið hefst 13. nóvember, kennt á mánudögum og miðvikudögum í volgum sal kl. 19:30 (75 mín)

Yin Yoga stöðurnar eru gerðar nálægt jörðu, sitjandi, liggjandi, og stöðum haldið út frá slökun. Markmiði er að efla orkuflæði líkamans, næra djúpvefi, bein og liðamót.

Yoga stöðunni er haldið í allt að 5 mínútur svo hægt sé að ná til bandvefsins, styrkja hann og styðja. Bandvefurinn er seigur vefur sem er ein helsta undirstaða hreyfifærni líkamans. Bandvefurinn á það til að geyma og halda í spennu, streitu, bólgur og verki sem koma jafnvel frá gömlum áföllum, lífsreynslu og meiðslum. Í öllum Yin Yoga stöðum fer bandvefurinn að gefa eftir, liðamót liðkast og skiljast að, með því eykst blóðflæðið um allan líkaman. Með reglulegri iðkun eykst tengingin og næmnin við líkamann og hans þarfir. Ræktum sjálfsmildi með áherslu á kærleiksríkari nærveru.

Innifalið:
• Ótakmarkaður aðgangur að tækjasal og opnum tímum​
• Einstaklingsmiðuð þjálfun• Öndunaræfingar
• Hugleiðsla
• Nærandi slökun
• Slökunarnudd á hnakka og hálsi, höndum, fótum, notast er við olíur og olíudropa
• Óvæntur glaðningur

Þjálfari námskeiðsins er Helen Long en hún féll fyrir Yoga í fyrsta tíma aðeins 12 ára gömul. Helen öðlaðist Yogakennararéttindi 2020, með 200 tíma RYT námskeiði. Í kjölfarið fór hún í 300 tíma RYT nám hjá Amaryoga. Helen er einnig með réttindi til að kenna Yoga Nidra, Hugleiðslu, Tantra Yoga, Ayrveda fræði og Hata Yoga. Hún er menntaður sjúkraliði, leik og grunnskólakennari, og vinnur sem sérkennslustjóri í leikskóla.

 

Lokað 4 vikna Power Pilates & Yoga námskeið hefs 13. nóvember, kennt á mánudögum og miðvikudögum kl. 6:05-6:55.

Hér er í boði námskeið sem kemur lífinu á réttan kjöl, léttir lundina og það sem meira er kemur þér í frábært form.

Æfingarnar eru blanda af Pilates og Yoga, þær styrkja allan líkamann, móta, mynda fallega og langa vöðva.

Innifalið:
• Aðgangur að öllum opnum tímum og tækjasal
• Ráð um mataræði og gullkorn inn í daginn
• Bætum tækni, grunnbrennslu og styrk
• Einstaklingsmiðuð þjálfun
• Hugleiðsla
• Óvæntur glaðningur

Þjálfari námskeiðsins er Karítas Björgúlfsdóttir. Karítas lauk 200 klst Yogakennaranámi frá Yoga Teachers College árið 2021 og ári síðar lauk hún námi í öndunartækin frá sama skóla. Síðan þá hefur hún kennt yoga bæði í Tælandi og á Íslandi. Ung æfði hún fimleika en síðustu 15 árin hefur hún stundað ýmsa líkamsrækt og hefur því mikla reynslu á því sviði. Einnig hefur hún brennandi áhuga á heilbrigði, mataræði og drekkur í sig allt sem við kemur heilbrigðum lífsstíl.

Minnum á námskeiðs- og tómstundastyrki verkalýðsfélaga og fyrirtækja sem endurgreiða námskeiðskostnað.