
Ný námskeið eru að hefjast
Þann 3. september hefjast ný námskeið hjá okkur. Í boði verða eftirfarandi:
Krefjandi
Námskeið sem varir í 35 daga fyrir fólk í ágætu formi sem vill hámarka árangur sinn. Á námskeiðinu verður lagt upp með þrjá nauðsynlegustu þætti þjálfunar sem eru vöðvaþol, styrkur og hjarta- og æðakerfið.
Gym Fit kvenna og karla
Það er margra ára reynsla og þekking okkar sem kemur þáttakendum í drauma formið. Fjölbreytni er í fyrirrúmi og þátttakendur kynnast öllu því besta sem Hress hefur upp á að bjóða.
Pilates Klassik
Í tímunum er tekið vel á öllum líkamanum án hamagangs og henta tímarnir því vel öllum aldurshópum (bæði konum og körlum). Kennt í volgum sal.
Hot Yoga Áskorun
Mögnuð blanda af krefjandi Hot Yoga, hugleiðslu og núvitund. Námskeiðið er ætlað fyrir þá sem hafa grunn í yoga
og vilja taka iðkun sína einu skrefi lengra.
Hægt er að fræðast meira um námskeiðin undir Námskeið á heimasíðunni eða í móttöku Hress. Verslaðu hér