Fréttir
08
10
2023

Power pilates & Yoga námskeið hefst 9.10.23

Lokað 5 vikna Power Pilates & Yoga námskeið kennt á mánudögum og miðvikudögum kl. 6:05-6:55.

Næsta námskeið hefst 9. október – 8. nóvember.

Hér er í boði námskeið sem kemur lífinu á réttan kjöl, léttir lundina og það sem meira er kemur þér í frábært form.

Æfingarnar eru blanda af Pilates og Yoga, þær styrkja allan líkamann, móta, mynda fallega og langa vöðva.

Innifalið:
• Aðgangur að öllum opnum tímum og tækjasal
• Ráð um mataræði og gullkorn inn í daginn
• Bætum tækni, grunnbrennslu og styrk
• Einstaklingsmiðuð þjálfun
• Hugleiðsla
• Óvæntur glaðningur

Þjálfari námskeiðsins er Karítas Björgúlfsdóttir. Karítas lauk 200 klst Yogakennaranámi frá Yoga Teachers College árið 2021 og ári síðar lauk hún námi í öndunartækin frá sama skóla. Síðan þá hefur hún kennt yoga bæði í Tælandi og á Íslandi. Ung æfði hún fimleika en síðustu 15 árin hefur hún stundað ýmsa líkamsrækt og hefur því mikla reynslu á því sviði. Einnig hefur hún brennandi áhuga á heilbrigði, mataræði og drekkur í sig allt sem við kemur heilbrigðum lífsstíl.

Skráning hér: https://www.sportabler.com/shop/hress/namskeid

Minnum á námskeiðs- og tómstundastyrki verkalýðsfélaga og fyrirtækja sem endurgreiða námskeiðskostnað.