Fréttir
27
08
2019

STELPUR 12-15 ÁRA NÁMSKEIÐ

Eftir: Salka Salka 0

 

Nýtt námskeið hefst 9. september – 30. nóvember 2019.
Mánudaga, miðvikudaga og
fimmtudaga kl. 16:00 – 16:45.
Þjálfarar: Saga og Nótt.
Frábærir 45. mín tímar.
Verð: kr. 34.990 fyrir 12 vikur.
Niðurgreitt af Hafnarfjarðarbæ, Kópavogi,
Garðabæ og Reykavík.

Námskeiðin eru fyrir stelpur sem hafa gaman af því að læra það helsta og vinsælasta í heilsuræktinni í dag.
Æfingar eru byggðar upp þannig að allir geta tekið þátt, óháð formi og getu, en koma til með að bæta styrk og þol til muna.
Við náum árangri saman sem hægt er að vera stoltur af.
Tímarnir enda oft á góðum teygjum og spjalli þar sem stelpurnar fá upplýsingar um ýmislegt sem tengist heilbrigðum lífsstíl.
Kynntar eru helstu þjálfunarleiðir Hress þar á meðal: Þjálfun í tækjasal, Hot-Yoga, stöðvaþjálfun, Spinning/Activio, Warm-fit og margt fleira.

Skráning og nánari upplýsingar í síma 565-2212 eða á mottaka@hress.is (upplýsingar um niðurgreiðslur fást einnig í móttöku Hress)
Þú tryggir pláss með greiðslu á https://hress.felog.is/ eða mínar síður Hafnarfjarðabæ.

Það var uppselt á síðasta námskeið, við mælum með að vera tímanlega með skráningar!

 saga nott