Fréttir
15
10
2018

Styrktarmálefni Hressleikanna 2018.

Eftir: Sirrý 0

HRESSLEIKARNIR 2018

Það er með stolti sem við kynnum styrktarmálefni
Hressleikanna 2018.
Það er einstök fjölskylda úr Hafnarfirðinum sem við styrkjum í ár. Hjónin Fanney Eiríksdóttir, Ragnar Snær Njálsson og börn þeirra þeirra þau Emilý Rósa 3 ára og Erik Fjólar 3. vikna.
Fanney og Ragnar hafa verið saman sl. 7 ár. Verið dugleg að hreyfa sig og njóta lífsins. Í vor fengu þau þær gleðifréttir að þau ættu von á barni. Þegar Fanney var komin 20 vikur á leið greindist hún með leghálskrabbamein. Reynt var að meðhöndla meinið með lyfjagjöf svo meðgangan gæti gengið sinn vanagang.
Krabbameinið lét ekki að stjórn eins og óskað hafði verið eftir svo Erik Fjólar varð að koma í heiminn á 29. viku meðgöngunnar. Fanney hóf harða lyfja og geilsameðferð tveimur vikum eftir keisarskurð, við horfum bjartsýn fram á veginn og vonum að allt gangi að óskum. Það er ljóst að verkefnin eru mörg og hjá litlu fjölskyldunni. í kjölfarið af fæðingu fyrirbura og krabbameinsmeðferðar þurfa þau á kröftum hvors annar að halda og ekki auðvelt að stunda vinnu meðfram slíkum áskorunum og nauðsynlegt að gefa sér tíma til að fara vel með sig.
Við í Hress ætlum að styðja fjölskylduna á
Hressleikunum í ár. 


Hressleikarnir verða haldnir 3. nóv. skráning á leikana hefst hér kl. 14:00, 15. okt.

Sala á Happdrættislínum hefst 20.okt. 

Söfnunarreikningur HRESSLEIKANNA:
0135-05-71304 á kennitölu 540497-2149.
Nánar um Hressleikana á www.hress.is

Opin viðburður á facebook. 

Falleg umfjöllun á vísi.is 

Umfjöllun á DV.is

44057248_10155841390433148_2096965345016283136_n        44110889_10155723757888021_1771990467085336576_n

44056824_10155723758533021_6518340031118049280_n   44122184_10155841389493148_3867812440267816960_n