Fréttir
10
02
2017

YOGA WARRIOR

YOGA-WARRIOR

 

Næsta námskeið hefst 13. febrúar.

 

  • Æfingar gerðar í hituðum sal.
  • Frábær grunnur fyrir allt Yoga
  • Farið í undirstöðu og hugmyndafræði yoga:
    • s.s. stöður, öndun, slökun og hugleiðslu.
  • Styrkir  úthald, liðleika og jafnvægi.
  • Tveir kenndir tímar á viku:
    • Mánudaga og Miðvikudaga
  • Kennari: Elín Skúladóttir
1923963_31106997447_4434_n

NÁNARI LÝSING:

Kjarninn í yoga er jafnvægi líkama, huga og sálar.
Á námskeiðinu Yoga Warrior í Hress er farið vel í helstu grunnstöður yoga og þátttakendum kenndar aðferðir til að aðlaga þær að eigin líkama.
Þegar líður á námskeiðið verða erfiðari stöður undirbúnar og kynntar.
Jafnframt verður fjallað um átta útlimi yoga og í þeirri yfirferð verða kenndar slökunaraðferðir og hugleiðsla.
Þá verður lögð áhersla á hreint mataræði.
Námskeiðið gefur iðkendum frábæran grunn fyrir allt yoga.
Yoga Warrior í Herss kætir, bætir styrk, úthald, liðleika og almennt jafnvægi í lífinu.

Námskeiðið er fimm vikur.
Á meðan á námskeiðinu stendur er nemendum frjálst að mæta í alla opna tíma í Hress og tækjasal.

 

KENNDIR ERU 2 TÍMAR Í VIKU:

Mánudaga og miðvikudaga kl. 19:40
Kennari: Elín Skúladóttir

VERÐ:

5 vikur: Verð: 16.990,- Korthafar 8.990,-
Tryggðu þér pláss og byrjaðu árið á því að koma þér í jafnvægi!

INNIFALIÐ:

Ótakmarkaður aðgangur að tækjasal og opnum tímum í Hress. Einnig aðgangur að Bjargi á Akureyri, Sportstöðinni Selfossi og Hressó í Vestmannaeyjum.


SKRÁNING:

Skráning og nánari upplýsingar  í síma 565-2212 eða á Mottaka@hress.is
Þú getur einnig skráð þig hér.

 

Greiðslumátar eru eftirfarandi:

Greiða í móttöku HRESS Dalshrauni

Greiða í heimabankanum inn á reikning: 135-26-4497 kt 540497-2149

Vinsamlegast senda kvittun fyrir greiðslu á nonni@hress.is

Takið fram nafn þátttakanda, kennitölu og fyrir hvaða námskeið greitt er.

Kvittunin gildir sem greiðsla.